Um Söguþingið Dagskrá Fréttir Framsögumenn Málstofur
Minnsta leturgerð
Miðstærð leturgerðar
Stærsta leturgerð
Fréttir
18. maí 2006 11:38

Valdamiðstöðvar á miðöldum

Þinggestum er bent á að þeir geta kynnt sér erindi framsögumanna í málstofunni Valdamiðstöðvar sem Helgi Þorláksson stýrir auk hans taka þau Gunnar Karlsson, Sigríður Beck, Gavin M. Lucas, Jón Viðar Sigurðsson og Sverrir Jakobsson þátt. (Ef klikkað er á nöfin má lesa erindin í fullri lengd).

 
18. maí 2006 10:19

Ljósmyndafræði

Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur stýrir málstofu um ljósmyndafræði á söguþingi. Nokkur breyting hefur orðið á skipan framsögumanna en þær Gunnþórunn Guðmundsdóttir og Æsa Sigurjónsdóttir sjá sér því miður ekki fært að vera með okkur. Í þeirra stað munu þau Gísli Helgason sagnfræðingur á Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Ingibjörg Sigurðardóttir bókemnntafræðingur flytja erindi. Inga Lára Baldvinsdóttir mun einnig taka til máls.

 

 

meira...
 

 
18. maí 2006 10:15

Í nærmynd

Már Jónsson leit við í spjall hjá Leifi Haukssyni í samfélaginu í nærmynd í gær. Umræðuefnið var íslenska söguþingið og bar margt á góma í tengslum við það. Áhugasamir geta hlýtt á viðtalið á vef Rúv.

 
16. maí 2006 11:04

Þingkrá

Þingkrá íslenska söguþingsins að þessu sinni er Uppsalir, sem til húsa er að Aðalstræti 16 í hinu nýopnaða Hótel Reykjavík Centrum. Þar geta þinggestir safnast saman að kveldi dags og notið ljúfra veiga á góðu verði í frábærum félagsskap.

 
15. maí 2006 09:01

Opin dagskrá Landsbanka

Landsbankinn styður við bakið á íslenska söguþinginu 2006 af miklum myndarskap og kemur að þinginu frá ýmsum hliðum. 

Á sunnudeginum 21. maí frá 13-18  fer fram opin dagskrá í boði bankans í Hátíðarsal Háskólans.

 

 

meira...
 

 
15. maí 2006 08:41

Þingveisla á Hótel Borg

Að þessu sinni verður þingveislan haldin á Hótel Borg, Gyllta sal laugardagskvöldið 20. maí.

Margrét Gestsdóttir hefur tekið að sér veislustjórn og mun Stefán Pálsson halda ræðu kvöldsins. Húsið opnar kl 18:30.

Matseðill birtist hér að neðan og eru gestir beðnir um að skrá sig sérstaklega í veisluna með því að senda póst á hilmag@hi.is fyrir föstudaginn 19. maí

 

meira...
 

 
12. maí 2006 16:23

Fishing on Common Grounds

Út er komin bókin Fishing on Common Grounds. The Consequences of unregulated Fisheries of North Sea Herring in the Postwar Period. Höfundur er Hrefna M. Karlsdóttir og er bókin doktorsritgerð hennar. Hrefna mun kynna efni ritgerðar sinnar á Söguþingi.

meira...
 

 
12. maí 2006 14:56

Gísli Gunnarsson slæst í hópinn

Dagskrá þingsins er enn að taka eilitlum breytingum. Því miður getur ekki orðið af málstofunni "Kristin trú og kvennahreyfing" en hún átti pláss í dagskrá þingsins eftir hádegi á laugardeginum. Við þurfum þó ekki að örvænta þar sem Gísli Gunnarsson prófessor við Háskóla Íslands mun fylla það skarð. Hann mun bregðast við hinni nýútkomnu bók Frá endurskoðun til upplausnar og svara þeirri gagnrýni sem þar kemur fram. Ber dagskráin yfirskriftina "Lauk endurskoðun Íslandssögunnar 1993?"

meira...
 

 
12. maí 2006 13:17

Póstkortin hennar Bínu

10. maí 2006 17:02

Miðaldasaga á Söguþingi

10. maí 2006 16:11

Jón Baldvin á Söguþingi

9. maí 2006 14:50

Formenn festir á spjöld sögunnar

8. maí 2006 11:57

Stakir fyrirlestrar

8. maí 2006 10:17

Frá endurskoðun til upplausnar

5. maí 2006 14:42

Sagnir

4. maí 2006 10:42

Skráningarfrestur framlengdur

4. maí 2006 10:03

Spennandi dagskrá í boði Landsbankans

27. apríl 2006 13:11

Íslendingabók

24. apríl 2006 15:33

Landnámsbærinn í Aðalstræti

24. apríl 2006 11:35

Ný málstofa

24. apríl 2006 10:44

Skráningarfrestur framlengdur

24. apríl 2006 10:30

Fornleifafræði á söguþingi

24. mars 2006 13:25

Skráning á söguþing 2006

16. mars 2006 10:54

Liz Stanley á Söguþingi 2006


eldri fréttir

Leita

 

 

 

Site Meter

  Íslenska söguþingið 2006 - ReykjavíkurAkademían 4. hæð, JL-húsinu, Hringbraut 121, 107 Reykjavík, netfang: hilmag@hi.is, símanúmer: 8677111